Claudia Sheinbaum - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
- ️Sun Jun 24 1962
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Claudia Sheinbaum | |
---|---|
![]() Sheinbaum október 2024. | |
Forseti Mexíkó | |
Núverandi | |
Tók við embætti 1. október 2024 | |
Forveri | Andrés Manuel López Obrador |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 24. júní 1962 (62 ára) Mexíkóborg, Mexíkó |
Stjórnmálaflokkur | Morena |
Maki | Carlos Ímaz Gispert (g. 1987; sk. 2016) Jesús María Tarriba (g. 2023) |
Börn | 2 |
Undirskrift | ![]() |
Claudia Sheinbaum Pardo (f. 24. júní 1962) er mexíkósk vísinda- og stjórnmálakona og núverandi forseti Mexíkó. Hún tók við embætti þann 1. október 2024. Sheinbaum er meðlimur í vinstriflokknum Morena (Þjóðendurnýjunarhreyfing), flokki forvera síns í forsetaembætti, Andrés Manuel López Obrador. Hún er bæði fyrsta konan og fyrsti Gyðingurinn til að gegna forsetaembætti í Mexíkó.
Sheinbaum var borgarstjóri Mexíkóborgar frá 2018 til 2023.[1] Hún er með doktorsgráðu í orkuverkfræði.[2]
Sheinbaum bauð sig fram í forsetakosningum Mexíkó árið 2024 með stuðningi fráfarandi forsetans Andrés Manuel López Obrador. Hún vann afgerandi sigur í kosningunum þann 3. júní með tæplega sextíu prósentum atkvæðannna.[3]
- ↑ „Sheinbaum fyrsti kvenforsetinn í Mexíkó“. mbl.is. 3. júní 2024. Sótt 3. júní 2024.
- ↑ Hólmfríður Gísladóttir (3. júní 2024). „Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó“. Vísir. Sótt 3. júní 2024.
- ↑ Markús Þ. Þórhallsson (3. júní 2024). „Claudia Sheinbaum kjörin fyrsti kvenforsetinn í skugga mikils ofbeldis“. RÚV. Sótt 3. júlí 2024.