is.wikipedia.org

Theodor Mommsen - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Theodor Mommsen.

Christian Matthias Theodor Mommsen (30. nóvember 18171. nóvember 1903) var þýskur fornfræðingur, sagnfræðingur og lögfræðingur. Mommsen er almennt talinn einn merkasti fornfræðingur 19. aldar. Framlag hans til rannsókna á Rómarsögu hefur varanlegt gildi og er enn mikilvægt. Hann hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1902.

Mommsen vann einnig að stjórnmálum í Þýskalandi. Rannsóknir hans á rómverskum lögum voru þýðingarmiklar fyrir þróun þýskra laga.